Fræðsla - Fagmat

Silfurskottur
Hvað geta skotturnar sagt okkur?

Hefur þú upplifað það að standa inni á baðherbergi um miðja nótt, kveikja ljósið og sjá eitthvað örsmátt og silfurlitað skjótast í felur undir gólflistann?

Silfurskottan (Lepisma saccharinum) er vænglaust skordýr og eins konar lifandi steingervingur sem hefur nánast ekkert breyst í milljónir ára. Þótt hún sé lítil, þá er hún ótrúlega seig:

Lífseigla: Hún getur lifað í allt að átta ár við réttar aðstæður.

Heitið: Nafnið dregur hún af silfruðu hreistri sínu og hlykkjóttum hreyfingum sem minna helst á fisk á þurru landi.

Uppáhaldsmatur: Silfurskotta hefur sérstakt dálæti á sterkju og lími, sem þýðir að bókabönd, gamall pappír og jafnvel veggfóður getur verið á matseðlinum.

Lífið án matar: Merkilegast er kannski að hún getur lifað mánuðum saman án fæðu, svo lengi sem hún hefur aðgang að vatni.

Skaðlausar en ógeðfelldar

Í grunninn eru silfurskottur skaðlausar. þær bíta ekki fólk og bera ekki með sér sjúkdóma. En fyrir okkur sem starfa við ástandsskoðanir fasteigna, þá eru þær mikilvægt pússluspil í heildarmyndinni.

Silfurskottur þrífast nefnilega best þar sem rakastigið er hátt, eða á milli 75% og 95%. Ef þú ert reglulega að rekast á þær, er það oft vísbending um að raki sé að safnast saman einhvers staðar þar sem hann á ekki að vera.

Fagmatssaga: Leitin að skottunum

Simmi smiður fór einu sinni í fjölbýlishús í Vesturbænum sem var byggt árið 1981. Silfurskottur höfðu gert vart við sig á þriðju hæð og vildi húsráðandi losna við þessi kvikindi. Við framkvæmd rakamælinga kom í ljós að ekkert var athugavert við umrædda íbúð.

Simmi smiður gekk á milli íbúða og fékk að skoða baðherbergi hjá nágrönnum. Þegar hann var kominn niður á jarðhæð fann hann loksins upptökin. Í kyndikompunni var mikill hiti og raki vegna þess að það saggaði mikið á kaldavatnsinntakinu, sem hafði þegar valdið skemmdum á veggjum rýmisins. Öryggisniðurfall í gólfi stóð einnig opið, án vatnsláss og því var megn klóaklykt í rýminu.

Hluti af vatnslögnunum var sameiginlegur og lágu þær frá lagnagrind og upp í íbúðirnar. Silfurskotturnar gátu því ferðast meðfram lögnum um allt hús. Með því að tengja húsfélagið við pípulagningarmann og meindýraeyði var þetta vandamál úr sögunni.

Okkar ráð til þín

Ef þú sérð eina og eina skottu af og til á baðherbergi þarf það ekki að þýða neitt stórvægilegt – oft dugir að lofta betur út eftir sturtu og sinna þrifum samkvæmt góðum venjum.

En ef þær fara að láta sjá sig í þurrum rýmum eins og svefnherbergi eða stofu, þá er gott að staldra við og grípa til aðgerða. Oft er nóg að eitra með hjálp meindýraeyðis, en það er líka gott að undirbúa sig fyrir frekari rannsóknarvinnu. Það skilar nefnilega yfirleitt litlum árangri að eitra einungis hluta af fasteign ef þær eru komnar út um allt hús vegna undirliggjandi raka.

Hefur þú tekið eftir silfurskottum í þínu nærumhverfi?

Við hjá Fagmat hjálpum þér að lesa í vísbendingarnar og finna raunverulegar orsakir vandans.

Feld- og hamgærur
Hefur þú rekist á litla, dökka bjöllu eða kannski loðna, brúna lirfu sem minnir helst á örsmáan bursta?

Gærur eru talsvert ólíkar silfurskottum. Á meðan skottan leitar í raka, þá þurfa gærur aðgang að lífrænum leifum úr dýraríkinu til að þrífast.

Hvað einkennir gærur?

Gærur eru harðgerar bjöllur sem eru oftast dökkar á litinn. Þær eru mjög einkennandi í útliti, en oft eru það lirfurnar sem fólk verður var við fyrst á heimilum sínum.

Lirfurnar eru helsta einkenni þess að gærur hafi hreiðrað um sig. Helstu einkenni þeirra eru:

Útlit: Þær eru gjarnan brúnar og mjög hærðar.

Fæða: Þær nærast á hvers kyns þurrum dýraleifum, svo sem þurrkuðum fiski, hunda- og kattamat, eða dauðum skordýrum.

Ég rekst oft á þessi kvikindi í minni vinnu, sérstaklega lirfurnar sem leynast inn í skápum hjá fólki – oftast í ruslaskápum eða eldhúsinnréttingum. Almennt séð, þá eru þessar gærur einungis til ama og þjóna engum tilgangi á heimilum fólks!

Þótt ég sé ekki menntaður líffræðingur eða meindýraeyðir þá hef ég lært að þekkja þær. Hef oft sjálfur sent kvikindi í greiningu sem ég finn inni á heimilum fólks eða spurt fróðari menn sem sérhæfa sig í skordýrum/meindýrum.

Hamgæran (Larder Beetle): Þessi er eiginlega sú sem veldur mestum óþægindum í eldhúsinu. Hún sækir í fituríkar matarleifar, hunda- eða kattamat, þurrt kjöt eða gamalt mjöl. Hún er til marks um sóðaskap eða illa geymdar matvörur inni í skápum hjá fólki.

Feldgæran (Carpet Beetle/Vodka Beetle): Þessi tegund er enn verri því hún eyðileggur vefnaðarvöru. Hún er meira tengd fataskápum og geymslum þar sem hún nær sér í prótein úr vörum úr dýraríkinu, eins og ullarfatnaði, loði eða skinnum. Hún finnst oft í og undir sófum

Ef þú sérð þessi kvikindi í miklum mæli, þá ráðlegg ég þér að hringja í löggiltan meindýraeyði strax.

Fagmatssaga

Ég fór einu sinni í fasteign þar sem allir ljóskúplar voru fullir af dauðum bjöllum. Ég komst inn í þakvirkið í gegnum lúgu ofan á þaki. Í ljós kom að það var allt fullt af músum í þakinu. Mýsnar gátu klifrað upp klæðningu á húsinu og þaðan inn í þakvirkið. Mýsnar voru búnar að hreiðra um sig í öllu þakinu. Dauðar mýs breyttust í fæðu fyrir lirfurnar og þegar lirfurnar urðu að bjöllum, þá ferðuðust bjöllurnar í gegnum rakavarnarlagið og þaðan inn í ljóskúpla.