Silfurskottur

Óvelkomnir gestir eða gagnlegar vísbendingar ástand fasteigna?

Hefur þú upplifað það að standa inni á baðherbergi um miðja nótt, kveikja ljósið og sjá eitthvað örsmátt og silfurlitað skjótast í felur undir gólflistann?

Silfurskottan (Lepisma saccharinum) er vænglaust skordýr og eins konar lifandi steingervingur sem hefur nánast ekkert breyst í milljónir ára. Þótt hún sé lítil, þá er hún ótrúlega seig:

  • Lífseigla: Hún getur lifað í allt að átta ár við réttar aðstæður.

  • Heitið: Nafnið dregur hún af silfruðu hreistri sínu og hlykkjóttum hreyfingum sem minna helst á fisk á þurru landi.

  • Uppáhaldsmatur: Silfurskotta hefur sérstakt dálæti á sterkju og lími, sem þýðir að bókabönd, gamall pappír og jafnvel veggfóður getur verið á matseðlinum.

  • Lífið án matar: Merkilegast er kannski að hún getur lifað mánuðum saman án fæðu, svo lengi sem hún hefur aðgang að vatni.

Skaðlausar en ógeðfelldar

Í grunninn eru silfurskottur skaðlausar. þær bíta ekki fólk og bera ekki með sér sjúkdóma. En fyrir okkur sem starfa við ástandsskoðanir fasteigna, þá eru þær mikilvægt pússluspil í heildarmyndinni.

Silfurskottur þrífast nefnilega best þar sem rakastigið er hátt, eða á milli 75% og 95%. Ef þú ert reglulega að rekast á þær, er það oft vísbending um að raki sé að safnast saman einhvers staðar þar sem hann á ekki að vera.

Fagmatssaga: Leitin að skottunum

Ég fór einu sinni í fjölbýlishús í Vesturbænum sem var byggt árið 1981. Silfurskottur höfðu gert vart við sig á þriðju hæð og vildi húsráðandi losna við þessi kvikindi. Við framkvæmd rakamælinga kom í ljós að ekkert var athugavert við umrædda íbúð, en sagan endaði ekki þar.

Ég gekk á milli íbúða fyrir neðan og fékk að skoða baðherbergi hjá nágrönnum. Þegar ég var kominn niður á jarðhæð fann ég loksins upptökin. Í kyndikompunni var mikill hiti og raki vegna þess að það saggaði mikið á kaldavatnsinntakinu, sem hafði þegar valdið skemmdum á veggjum rýmisins.

Vandamálið var að hluti af vatnslögnunum var sameiginlegur og lágu þær frá lagnagrind og upp í íbúðirnar. Silfurskotturnar gátu því ferðast meðfram lögnum um allt hús. Með því að tengja húsfélagið við pípulagningarmann til að stöðva rakann og meindýraeyði til að fylgja því eftir með eitrun, tókst að leysa málið fyrir alla íbúa.

Mitt ráð til þín

Ef þú sérð eina og eina skottu af og til á baðherbergi þarf það ekki að þýða neitt stórvægilegt – oft dugir að lofta betur út eftir sturtu og sinna þrifum samkvæmt góðum venjum.

En ef þær fara að láta sjá sig í þurrum rýmum eins og svefnherbergi eða stofu, þá er gott að staldra við og grípa til aðgerða. Oft er nóg að eitra með hjálp meindýraeyðis, en það er líka gott að undirbúa sig fyrir frekari rannsóknarvinnu. Það skilar nefnilega yfirleitt litlum árangri að eitra einungis hluta af fasteign ef þær eru komnar út um allt hús vegna undirliggjandi raka.

Hefur þú tekið eftir silfurskottum í þínu nærumhverfi?

Við hjá Fagmat hjálpum þér að lesa í vísbendingarnar og finna raunverulegar orsakir vandans.

Next
Next

Feld- og hamgærur