Skilmálar
Markmið ástandsskoðunar fyrir sölu og kaup
Markmiðið með ástandsskoðun er að upplýsa viðskiptavini um raunverulegt ástand fasteigna. Við gerum það með hlutlausri skoðun og stöðluðum verkferlum. Almennt ástand byggingahluta er metið, byggingarhlutar rakamældir með viðmiðunar rakamælum og sýni tekin ef grunur er um örveruvöxt í samráði við skráða eigendur fasteignar. Ef viðskiptavinir Fagmats telja ekki þörf á rituðum niðurstöðum geta þau látið skoðunarmann vita að skoðun lokinni og afþakkað skýrslu. Þá er skýrslan ekki unnin en við það lækkar þóknunin.
Markmið grunnskoðunar
Markmiðið með grunnskoðun er að skoða og greina ákveðin vandamál sem geta fylgt fasteignum. Niðurstöður eru kynntar munnlega á vettvangi og þar að leiðandi engar ritaðar niðurstöður sem fylgja grunnskoðun. Ef óskað er eftir samantekt, ítarlegra minnisblaði eða skýrslu ásamt kostnaðargreiningu er sú vinna unnin í tímavinnu og helst alfarið í hendur við umfang skoðunar og vandamála tengd umræddri fasteign. Dæmi: Húsráðandi telur að það sé eitthvað að í fasteign sinni en þarf ekki heildar úttekt á allri eigninni. Þá er einungis einn eða fleiri hlutar fasteignar metnir og stuttri samantekt skilað með helstu niðurstöðum ef þess er óskað.
Hvernig eru fasteignir skoðaðar af starfsmönnum Fagmats?
Eignin er skoðuð að utan sem innan og þeir gallar sem skoðunarmaður tekur eftir eru skráðir niður. Að utan eru einungis aðgengileg svæði skoðuð annars eru þau skoðuð frá jörðu. Byggingahlutar ofar en 3-4 metra frá jörðu eru ekki skoðaðir vegna fallhættu. Sérstakar ráðstafanir þarf að gera ef skoða á slíka byggingahluta og greiða þarf sérstaklega fyrir þá vinnu. Allur kostnaður við tækjaleigu fellur á viðskiptavin. Skoðunarmaður framkvæmir rakamælingar á byggingahlutum en í sumum tilfellum er notast við hitamyndavél. Viðmiðunarrakamælarnir gefa skoðunarmanni vísbendingu um hækkaðan raka en ekki raungildi raka í byggingarhlutanum. Hver ástandsskoðun tekur u.þ.b. 1-3 klukkustundir með ferðatíma. Ef óskað er eftir ítarlegum verklýsingum og kostnaðaráætlun er sú vinna unnin í tímavinnu og helst í hendur við umfang.
Við ástandsmat bygginga er árangurríkast að notast við nokkrar aðferðir og skoða ástand í samhengi við aldur, sögu, notendur og notkun byggingar. Mikilvæg skref eru sjónræn skoðun, upplýsingaöflun frá notendum, rakamælingar og sýnataka svo eitthvað sé nefnt.
Sjónræn skoðun
Sjónræn skoðun fer þannig fram að teknar eru ljósmyndir af fasteign, skoðað er eftir flötum með vasaljósi og eftir atvikum eru ummerki um raka merkt í gæðakerfi/teikningar sem og aðrar athugasemdir skráðar.
Upplýsingar frá notendum
Mikilvægt skref er að afla upplýsinga er varða fasteignina, fyrri framkvæmdir, viðhaldssögu auk sögu um leka og vatnstjón. Það er mikilvægt fyrir skoðunarmann að ræða við notendur fasteigna sem telja sig finna fyrir einkennum vegna rakaskemmda. Þá skiptir máli að vita hvort að öll fasteignin sé undir grun eða ákveðin rými. Notendur þekkja oft fasteignina vel, m.t.t. leka, ólyktar, meindýra en hafa einnig áttað sig á því hvort það sé dagamunur á einkennum eða hvort þau haldist í hendur við veðráttu.
Rakamælingar
Raki byggingarefna, s.s. gólfi, veggjum, lofti, þak- og gluggavið er almennt mældur með snertirakamælum (non-invasive) og/eða leiðnimælum. Niðurstöður eru birtar með ljósmynd af rakamæli sem er merktur inn á teikningu af tiltekinni fasteign ef hún liggur fyrir. Rakamælar sem notaðir eru til að kanna raunverulegt rakaástand í steypu eru boraðir niður í steypu skv. staðli ASTM F2170 og þeir eru hafðir þar þangað til jafnvægisástand kemst á mælana áður en lesið er af þeim. Áður en farið er í að bora niður mæla er notast við snerti rakamælar til að fá fyrstu hugmynd um rakaástand byggingarhluta og staðsetja þannig hvar bora á niður mæla.
Framkvæmd rakamælinga
Rakamælarnir (non-invasive) sem skoðunarmaður notar gefa til kynna efnisraka og eru þeir lagðir á byggingarefni þar sem ekki er grunur um raka en þannig finnur skoðunarmaður viðmiðunarrakastig. Í kjölfarið eru framkvæmdar kerfisbundnar viðmiðunarrakamælingar í leit að hærri gildum. Til þess að mæla raka í byggingarefnum á ákveðnum svæðum þarf að rjúfa byggingarefni, staðsetja mæla í steypu, múr og/eða inn fyrir klæðningu/dúk með tilheyrandi raski. Viðmiðunarrakamælingarnar gefa því einungis fyrstu vísbendingu og nýtast á þann hátt við rannsókn fasteignar.
Athugasemdir eftir sjónræna skoðun og rakamælingar eru eftir atvikum settar fram með því að merkja inn á teikningar þau svæði sem þar sem rakamælir sýndi hækkuð gildi og önnur frávik eins og ummerki um raka.