Fara beint í efni
Fagmat

Þjónusta, umfang og verð

Veldu skoðun og hvort þú óskar eftir ritaðri skýrslu. Reiknivélin sýnir áætlað heildarverð með vsk. Rituð skýrsla er ekki innifalin í skoðunargjaldi og er valin sérstaklega.

Verðreiknivél Fagmats

Reiknaðu áætlað verð áður en þú sendir beiðni

Veldu skoðun og hvort þú óskar eftir ritaðri skýrslu. Reiknivélin sýnir áætlað heildarverð með vsk. Valið og verðáætlunin fylgja með þegar þú opnar verkbeiðnina.

1Veldu skoðun

2Veldu skýrslu ef þess þarf

Áætlað heildarverð (m. vsk.)

0 kr.

Veldu skoðun til að byrja.0 kr.
Senda fyrirspurn/skoðunarbeiðni

Valin þjónusta, stærðarflokkur og áætlað verð fylgja verkbeiðninni. Aukið umfang, tækjaleiga og frekari rannsóknir eru gjaldfærð sérstaklega samkvæmt samkomulagi.

Verð utan höfuðborgarsvæðisins getur breyst vegna aksturs og ferðatíma.

Svona fer ferlið fram

Stutt yfirlit yfir það sem gerist frá verðáætlun til afhendingar niðurstöðu.

Skref 1: Verðskrá, skilmálar og verkbeiðni

Þú velur, reiknar út áætlaðan kostnað, kynnir þér skilmálana og sendir inn verkbeiðni.

Skref 2: Samskipti og tímabókun

Við höfum samband við þig út frá upplýsingunum sem þú gafst upp í verkbeiðninni. Finnum tíma fyrir skoðun sem hentar þér.

Skref 3: Skoðun og niðurstöður

Við mætum með tækjabúnaðinn okkar og framkvæmum skoðun. Niðurstöður eru kynntar munnlega að skoðun lokinni.

Skref 4: Uppgjör

Við sendum reikning í tölvupósti og í kjölfarið verður til krafa í netbankanum.

Skref 5: Skýrsla send

Þegar greiðsla hefur borist er ritaða skýrslan send ef hennar var óskað.

Algengar spurningar

Stutt svör við því sem oft kemur upp áður en beiðni er send.

Á ég að velja ástandsskoðun eða grunnskoðun?

Veldu ástandsskoðun þegar þú vilt almennt mat á eign fyrir kaup, sölu eða viðhald. Veldu grunnskoðun þegar um er að ræða afmarkað vandamál, til dæmis raka, leka eða ákveðinn byggingarhluta sem þarf að skoða betur.

Er rituð skýrsla innifalin?

Rituð skýrsla er ekki innifalin í skoðunargjaldi. Niðurstöður eru kynntar munnlega á vettvangi. Skrifleg skýrsla eða samantekt er valin sérstaklega og greidd samkvæmt verðskrá eða samkomulagi um umfang.

Hvað ef ég veit ekki hvaða þjónusta hentar?

Sendu fyrirspurn í beiðnaforminu og lýstu því sem þú þarft aðstoð við. Við förum yfir erindið og bendum á þá þjónustu sem hentar.

Er verðið í reiknivélinni endanlegt?

Reiknivélin sýnir áætlað verð með vsk. miðað við valda þjónustu. Verð utan höfuðborgarsvæðisins, óvenjulegt umfang eða aukavinna getur breytt endanlegum kostnaði.

Takið þið sýni vegna gruns um myglu?

Já, ef tilefni er til er hægt að taka sýni úr byggingarhluta og senda til rannsóknarstofu. Greining rannsóknarstofu er greidd sérstaklega.

Hvað gerist eftir að ég sendi verkbeiðni?

Við fáum upplýsingarnar, förum yfir umfangið og höfum samband til að staðfesta næstu skref og tímabókun.

Óviss um umfang eða hvaða skoðun hentar? Sendu fyrirspurn í forminu og lýstu því sem þú þarft aðstoð við.

Umfang og takmarkanir skoðunar

Skoðun byggir á aðgengi, sýnilegum ummerkjum og þeim mælingum sem framkvæmdar eru. Hún útilokar ekki falda galla. Nánari orsakagreining, opnun byggingarhluta eða rannsókn sýna getur þurft sérstakt samkomulag. Umfang og forsendur þjónustunnar koma fram í skilmálum Fagmats.