Verkleg reynsla
Yfir tveggja áratuga reynsla af mannvirkjagerð, viðgerðum og viðhaldsgreiningum fasteigna.
Fagmat er rekið af Sigmundi G. Hermannssyni, húsasmíðameistara og jarðfræðingi. Markmiðið er að hjálpa kaupendum, eigendum og félögum að fá skýrari mynd af ástandi fasteigna áður en teknar eru ákvarðanir um kaup eða viðhald.
Yfir tveggja áratuga reynsla af mannvirkjagerð, viðgerðum og viðhaldsgreiningum fasteigna.
Húsasmíðameistari, húsgagnasmiður, jarðfræðingur og matsmaður fasteigna. Simmi smiður er með sérhæfða þekkingu á efnum, raka og ástandi fasteigna.
Skoðanir byggja á faglegum mælingum, skráningu og skýrum niðurstöðum sem hinn almenni fasteignaeigandi skilur og getur notað í samstarfi við verktaka, mannvirkjahönnuði og lögmenn.
Góð skoðun á að gera stöðuna skiljanlega. Þú færð hlutlaust mat á því sem sést, hvað þarf að skoða betur og hvaða atriði skipta mestu máli áður en ákvörðun er tekin.
Sendu okkur fyrirspurn eða skoðunarbeiðni í forminu. Þar geturðu spurt um þjónustuna eða lýst því sem þú vilt fá skoðað.