Þessar leiðbeiningar eru almennar og eiga við flest hús. Í skýrslum Fagmats er vísað hingað til stuðnings. Þær koma ekki í stað niðurstaðna og tillagna í skýrslu um tiltekna fasteign.
Hvaðan kemur rakinn?
Raki er algengasta orsök skemmda í húsum. Hann berst einkum eftir fjórum leiðum:
- Leki utan frá. Regn og snjóbráð komast inn um þak, glugga, svalir, sprungur og samskeyti í útveggjum.
- Leki úr lögnum. Neysluvatns-, hita- og frárennslislagnir geta lekið lengi og hulið í gólfum og veggjum, án þess að notendur fasteignarinnar geri sér grein fyrir því.
- Raki úr jörð. Grunnvatn og jarðraki berast með hárpípukrafti upp í botnplötu, sökkla og kjallaraveggi. Raki berst líka sem vatnsgufa: raki leitar alltaf frá rakari stað til þurrari, og þar sem loft innandyra er þurrara en jarðvegurinn flyst vatnsgufa úr jörð og steypu inn í húsið, t.d. inn í niðurgrafna kjallara. Þetta gerist þótt ekkert vatn sjáist.
- Raki úr inniloftinu. Vatnsgufa frá fólki, eldamennsku, böðun og þvotti þéttist á köldum flötum eða berst inn í byggingarhluta um óþétta rakavörn.
Byggingarefni þola að blotna stutta stund. Skemmdir verða þegar efni helst rakt lengi: timbur fúnar, járn ryðgar, múr og steypa springa í frosti og mygla getur myndast. Mygla vex helst á lífrænum efnum eins og timbri, pappír og gifsplötum, en hún getur líka myndast á steypu, múr, flísum og öðrum ólífrænum efnum þegar ryk, óhreinindi, málning eða lím á yfirborðinu gefa henni næringu.
Raki og heilsa
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) fór yfir rannsóknir á raka og myglu í húsnæði og komst að þeirri niðurstöðu að meðal helstu áhrifa raka og örveruvaxtar innanhúss séu algengari einkenni frá öndunarfærum, ofnæmi og astmi. WHO leggur því áherslu á að koma í veg fyrir raka og gera við rakaskemmdir sem fyrst.
Fagmat metur ástand bygginga, ekki heilsu fólks. Sá sem telur sig finna fyrir einkennum sem tengjast húsnæði ætti að leita til læknis.
Heimild: WHO, 2009. WHO guidelines for indoor air quality: dampness and mould.
Fyrstu viðbrögð við vatnstjóni
Tíminn skiptir mestu eftir leka eða vatnstjón.
- Stöðva vatnið og skrúfa fyrir inntak ef lögn lekur.
- Þurrka upp vatnið, t.d. með vatnssugu, og færa húsgögn og muni sem blotnuðu út úr rýminu. Opna glugga og lofta vel út.
- Taka myndir og upplýsa viðeigandi tryggingafélag áður en hreinsun hefst.
- Þurrka sem fyrst. Hver klukkustund skiptir máli. Takist að þurrka innan eins til tveggja sólarhringa dugir oftast venjuleg viðgerð.
- Skólpvatn kallar á sérstakar aðgerðir. Ef skólp hefur flætt, t.d. úr stífluðu frárennsli eða salerni, ber vatnið með sér bakteríur og óhreinindi. Þá er ekki nóg að þurrka. Gljúp efni sem skólp hefur gengið í, eins og gólfefni, einangrun, gifsplötur og teppi, eru fjarlægð, og hreinsun er falin fagaðilum með viðeigandi búnað.
- Hafi efni verið blautt lengur, eða sjáist ummerki um örveruvöxt, er farið eftir röð úrbóta hér að neðan.
Röð úrbóta
Viðgerð á rakaskemmd tekst aðeins ef unnið er í réttri röð. Sé byrjað á yfirborðinu kemur skemmdin aftur.
- Stöðva rakann. Fyrst er orsökin lagfærð, til dæmis með því að þétta þak eða glugga, gera við lekar lagnir, lagfæra frárennsli og dren eða bæta loftun. Viðgerð heldur ekki nema orsökin sé horfin.
- Afmarka umfang. Skemmdir ná oft lengra en sést á yfirborði. Rakaskemmdir í útveggjum eru oftast mestar undir og umhverfis lekan glugga eða hurð, og í gólfum næst útvegg. Opnað er nógu langt út fyrir sýnilega skemmd til að sjá hvar heilt efni tekur við.
- Afmarka vinnusvæðið. Rýmið er lokað af með plasti, innbú fjarlægt og loftræsting stillt svo ryk berist ekki um húsið. Þeir sem vinna verkið nota viðeigandi hlífðarbúnað.
- Fjarlægja skemmt efni. Fúinn við, myglaðar plötur, blaut einangrun, skemmdur múr, ónýtt gólfefni og undirlag eru fjarlægð og sett beint í lokaða poka. Fjarlægt er ríflega út fyrir skemmdina. Oft er fljótlegra og ódýrara að fjarlægja einangrun og múr af heilum vegg en að elta skemmdina blett fyrir blett. Ekki er nóg að mála, hreinsa yfirborð eða klæða yfir.
- Hreinsa. Steyptir fletir sem skemmdin náði til eru steinslípaðir. Heilt timbur í burðarvirki er burstað eða slípað. Að því loknu er hreinsað með ryksugu með HEPA-síu og þurrkað af. Sterk hreinsiefni koma ekki í stað þess að fjarlægja skemmt efni.
- Þurrka. Byggingarhlutinn er þurrkaður með loftun, hita og rakatækjum. Steypa og þykk efni þorna hægt, oft á vikum eða mánuðum.
- Staðfesta þurrk. Áður en lokað er er rakastig mælt í efninu sjálfu og borið saman við þurrt efni. Byggingarhluta sem er enn rakur á ekki að loka.
- Lokahreinsun. Þegar viðgerð er lokið er allt rýmið hreinsað með ryksugu með HEPA-síu og þurrkað af, líka loft, veggir og innréttingar, áður en innbú er flutt aftur inn.
- Endurbyggja rétt. Notuð eru efni og frágangur sem hæfa staðnum, sjá hér að neðan. Gott er að skrá hvað var gert, með myndum og mælingum, svo saga hússins liggi fyrir við sölu eða síðara viðhald.
Efnisval eftir aðstæðum
- Votrými. Samfelld vatnsþétting undir flísum á gólfi og upp á veggi við sturtu og baðkar, halli að niðurfalli og rakaþolnar plötur.
- Kjallarar og veggir við jörð. Efni sem þola raka, t.d. steinull og múr, frekar en timbur og gifs. Ekki á að einangra steinvegg að innan með rakaþéttu lagi nema samkvæmt útreikningum.
- Timburveggir og þök. Rakavarnarlag á hlýju hlið einangrunar, samfellt og límt á öllum samskeytum, og loftað bil utan við vindvörn.
- Botnplötur. Undir botnplötu er grófur malarpúði og rakavörn, og ofan á henni gólfefni sem þola raka frá plötunni.
- Utanhúss. Efni og málning sem hleypa raka út, og vatnsbretti, áfellur og flasningar sem leiða vatn frá byggingunni.
Innbú
- Hlutir með slétt yfirborð, t.d. gler, málmur, plast og lakkaður viður, eru þurrkaðir af og þvegnir.
- Fatnaður og tau eru þvegin við eins háan hita og efnið þolir.
- Bólstruð húsgögn, dýnur, teppi, pappír og bækur sem hafa blotnað eða myglað er oftast best að farga.
Að fyrirbyggja raka
- Hreinsa þakrennur og niðurföll að hausti og vori.
- Halda jarðvegi og snjó frá útveggjum og láta yfirborð halla frá húsinu.
- Fylgjast með þéttingum við glugga, hurðir og í votrými og endurnýja þær eftir þörfum.
- Lofta reglulega út, sérstaklega eftir sturtu, eldamennsku og þvott, og nota viftur í baði og eldhúsi.
- Halda jöfnum hita í öllum rýmum og hafa húsgögn ekki þétt upp við kalda útveggi.
- Bregðast strax við leka og þurrka það sem blotnar.
- Láta mynda frárennslislagnir í eldri húsum og fylgjast með ástandi drenlagna.
Hvenær á að kalla til fagaðila?
Stærri viðgerðir á þökum, útveggjum, votrýmum og grunni ættu að vera unnar af fagmönnum með reynslu af rakaviðgerðum. Gott er að fá skriflega lýsingu á verkinu og á því hvernig staðfest verður að rakinn sé farinn áður en lokað er. Erfitt er að meta byggingarhluta eftir að honum hefur verið lokað. Því er best að óháður aðili fylgist með verkinu frá upphafi: skoði umfang þegar opnað er, mæli raka meðan þurrkað er og meti hvort óhætt sé að loka.
