Fagmat Senda verkbeiðni

Silfurskottur

Silfurskotta við sprungu á yfirborði innandyra.
Silfurskotta við sprungu á yfirborði innandyra. Skotturnar leita gjarnan í dimm, hlý og rakameiri rými.

Silfurskottur eru litlar, vænglausar og silfurgráar kögurskottur sem flestir taka eftir þegar ljós er kveikt í baðherbergi, þvottahúsi eða eldhúsi. Þær skjótast hratt í felur og halda sig helst í sprungum, bak við lista, undir innréttingum eða á öðrum dimmum stöðum.

Í flestum tilvikum eru silfurskottur fyrst og fremst til ama. Þær eru þó gagnleg vísbending fyrir fasteignaeigendur, því þær þrífast best þar sem hiti og raki eru hagstæð. Það þýðir ekki sjálfkrafa að leki eða rakaskemmd sé til staðar, en það segir okkur að það sé rétt að skoða aðstæður í samhengi.

Hvað eru silfurskottur?

Silfurskotta er tegundin Lepisma saccharina. Náttúrufræðistofnun lýsir henni sem innanhússdýri sem þrífst best við kjörhita um 25-30°C og mjög háan raka. Tegundin getur lifað í mörg ár við góðar aðstæður og heldur sig gjarnan þar sem fæða, skjól og raki fara saman.

Fæðan getur verið sterkja, lím, pappír, lífrænar leifar, mygla og ýmislegt sem safnast í sprungur og ryk. Þess vegna geta skotturnar sést í bókahillum, geymslum, baðherbergjum, eldhúsum og þvottahúsum, þó rakinn sé ekki alltaf augljós við fyrstu sýn.

Hvað segja þær um raka?

Raki er lykilatriði. Silfurskottur þurfa ekki endilega virkan leka, en þær kjósa rými þar sem rakastig er hátt og loftun er takmörkuð. Þær geta því verið merki um eðlilega rakamyndun, til dæmis eftir sturtu, en líka um eitthvað sem þarf að skoða betur.

  • Baðherbergi: Skotturnar geta tengst daglegri rakamyndun, lélegri loftun eða opnum leiðum við gólf og lagnir.
  • Þvottahús: Hiti, raki og lítil loftræsting geta skapað góðar aðstæður.
  • Geymslur: Kaldir fletir, lítil hreyfing á lofti og pappír eða karton geta hjálpað stofni að haldast við.
  • Þurr rými: Ef silfurskottur sjást reglulega í stofu eða svefnherbergi er ástæða til að kanna hvaðan þær koma.

Fagmatssaga: Leitin að skottunum

Simmi smiður fór einu sinni í fjölbýlishús í Vesturbænum sem var byggt árið 1981. Silfurskottur höfðu gert vart við sig á þriðju hæð og húsráðandi vildi skilja hvers vegna þær væru þar. Við rakamælingar kom í ljós að ekkert var athugavert við umrædda íbúð.

Skoðunin færðist þá yfir í sameiginleg rými og baðherbergi hjá nágrönnum. Þegar komið var niður á jarðhæð fundust líkleg upptök í kyndikompu. Þar var mikill hiti og raki vegna sagga á kaldavatnsinntaki og ummerki voru um skemmdir á veggjum. Öryggisniðurfall í gólfi stóð einnig opið, án vatnsláss, og klóaklykt var í rýminu.

Hluti vatnslagna var sameiginlegur og lá frá lagnagrind upp í íbúðirnar. Skotturnar gátu því ferðast meðfram lögnum um húsið. Með því að tengja húsfélagið við pípulagningarmann og meindýraeyði var hægt að taka á orsökunum, ekki bara einkennunum.

Hvenær er ástæða til að gera eitthvað?

Stök silfurskotta á baðherbergi þarf ekki að kalla á stórar aðgerðir. Gott er að byrja á því að bæta loftun, þurrka upp sýnilegan raka, halda niðurföllum hreinum og fylgjast með hvar skotturnar sjást.

Ef þær birtast aftur og aftur á sama stað, ef þær sjást í þurrum rýmum, eða ef með fylgja fúkkalykt, blettir, bólgur í efnum eða saga um leka, er skynsamlegt að skoða málið betur. Þá getur verið rétt að kanna rakastig, lagnaleiðir, loftun og byggingarhluta áður en ákveðið er hvað gera skal.

Hvernig Fagmat getur nýst

Fagmat sér ekki um meindýraeyðingu og við mælum með því að haft sé samband við þar til gerðan meindýraeyði ef þörf er á. Við skoðum hins vegar aðstæður sem geta skýrt hvers vegna silfurskottur sjást: raka, loftun, lagnaleiðir, sprungur, frágang við gólf og ummerki um mögulegan leka.

Hafir þú séð silfurskottur ítrekað í sama rými máttu senda okkur myndir og stutta lýsingu með verkbeiðni. Þá má meta næstu skref í rólegheitum og forðast óþarfa framkvæmdir.

Algengar spurningar

Eru silfurskottur hættulegar?

Nei. Silfurskottur bíta ekki fólk og bera almennt ekki með sér sjúkdóma. Þær eru fyrst og fremst óþægindi og vísbending um að skoða rakastig, loftun og aðstæður í rýminu.

Þýða silfurskottur alltaf rakaskemmdir?

Nei. Stök silfurskotta á baðherbergi þarf ekki að þýða rakaskemmdir. Endurtekin ummerki, sérstaklega í þurrum rýmum eða við sprungur og lagnir, geta þó verið ástæða til að skoða betur.

Hvað er best að gera fyrst?

Byrjaðu á einföldu skrefunum: lofta betur, þurrka upp raka eftir sturtu, skoða niðurföll og fylgjast með hvar skotturnar sjást. Ef þær birtast ítrekað á sama stað er gagnlegt að skrá það og taka myndir.

Hvenær þarf faglega skoðun?

Fagleg skoðun getur verið skynsamleg ef silfurskottur sjást reglulega í þurrum rýmum, ef fúkkalykt eða blettir fylgja, eða ef grunur er um leka, sagga eða lélega loftræstingu.

Senda verkbeiðni til Fagmats Skoða ástands- og grunnskoðanir Lesa um húsamaur/klóakmaur

Heimildir